Garðar er 4. Dan og byrjaði að æfa judo um 1970 og hefur öðlast víðtæka reynslu og þekkingu gegnum árin. Hefur starfað sem þjálfari, dómari og farastjóri í keppnisferðum. Garðar er stjórnarmaður í Tækniráði Judosambands Íslands og átti setu í stjórn Judosambands Íslands um árabil.